Óveðrið: helstu þjóðleiðir lokast í dag

Versta veðrið það sem af er ári skellur á landinu um og upp úr hádegi, en Veðurstofan varar við stormi og mikilli úrkomu á landinu þegar líða tekur á daginn, en þá má búast við að fjölda þjóðleiða verði lokað. Versta veðrinu er spáð á Vestfjörðum. Þar verður hugsanlega snjóflóðahætta.

Skil nálgast nú landið úr suðri með vaxandi austanátt og snjókomu, en þeim fylgir stormur eða rok og talsverð eða mikil úrkoma. Skilin fara norður yfir landið seinni partinn og gengur veðrið niður suðvestanlands í kvöld, suðaustantil aðra nótt, en ekki fyrr en eftir hádegi á morgun í öðrum landshlutum.

Þegar er farið að snjóa all hressilega víða um land og má búast við þæfingsfærð þegar upp úr hádegi þegar vindinn herðir, en úrkoman suðvestanlands verður ýmist í formi slyddu eða rigningu. Á höfuðborgarsvæðinu verður veðrið verst á milli klukkan 18:00 og 20:00 í kvöld en svo gengur nþað niður um mitt kvöld. Spá­in er aftur á móti slæm fyr­ir Vest­f­irði allt fram á annað kvöld.

Vegna óveðurs má búast við því að í dag þurfi að grípa til lokana á vegum á Suðvesturlandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Líkur eru á því að um og uppúr hádegi verði vegum lokað yfir Hellisheiði, um Þrengsli og á Mosfellsheiði. Ólíklegt er að unnt verði að beina umferð um Suðurstrandarveg á meðan aðrir vegir eru lokaðir. Þá er líklegt að einnig þurfi að loka Vesturlandsvegi um Kjalarnes.