Óveðrið: byggingarkrani féll á hús í garðabæ

Byggingarkrani féll á einbýlishús í Garðabæ rétt fyrir klukkan tólf í dag. Mbl.is segir frá því að ekki hafi orðið slys á fólki en bæði þak hússins og bíll sem stóð við það hafi orðið fyrir skemmdum. Fréttin birtist á vef Mbl.is rétt fyrir klukkan eitt og sögðu nágrannar þá að þeir hefðu ekki enn séð lögregluna á svæðinu.

Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Hafnarfirði segir í samtali við Hringbraut að lögreglan hafi fengið tilkynningu klukkan tvær mínútur yfir tólf. „Það er búið að kalla út verktakana og vinnueftirlitið og það er verið að gera ráðstafanir á vettvangi núna.\" Hann segir krannan hafa brotnað og fallið á einbýlishúsið og runnið þaðan á bíl sem stóð við húsið.

Hann vissi ekki á vegum hvaða verktaka kraninn var eða hversu mikið tjónið væri. „Sjálfsagt kemur það á eftir,\" segir Skúli.