Óvænt gull bættist í verðlaunagripasafn Þjóðverja með sigri í parakeppninni í listhlaupi á skautum á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang og þeir hafa tekið afgerandi forystu í verðlaunakeppninni, með alls 9 gullverðlaun til þessa. Norðmenn eru komnir upp í annað sæti eftir fimm daga keppni með flest verðlaun alls og Hollendingar eru í þriðja sæti. Skipting verðlauna milli efstu þjóðanna eftir gærdaginn sést á myndinni.
Óvæntur gullpeningur í verðlaunasafnið
Fleiri fréttir
Nýjast