Ótti stjórnvalda við málsókn að hálfu kröfuhafa kostar Íslendinga hundruð milljarða króna við uppgjör slitabúa bankanna.
Ólafarnir Arnarson og Ísleifsson ræddu í þætti sínum á Hringbraut í gærkvöld að ekkert lögfræðiálit hefði verið kynnt um þessa hættu og stöðu Íslendinga í þessu efni sem hefðu þó lagt Breta og Hollendinga fyrir EFTA-dómstólnum þegar Icesave-krafan var uppi.
Þeir kölluðu eftir haldbæru lögfræðiáliti um þetta efni og fullnægjandi mat óháðra aðila á því samkomulagi sem stjórnvöld gerðu um þessa hluti við kröfuhafa slitabúanna.
Ólafarnir eru á dagskrá á fimmtudagskvöldum klukkan 21:30 og verða endursýndir á Hringbraut í dag.