Óttast um rekstur álvera á íslandi

\"Það er mikilvægt hagsmunamál að stóriðjufyrirtækin á Íslandi geti áfram dafnað á Íslandi“, segir Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins en mikil umræða hefur verið um starfsskilyrði þessara fyrirtækja að undanförnu.

Almar segir að orkutengdur iðnaður og sjávarútvegur séu traustar stoðir útflutnings á vörum og þekkingu frá Íslandi, hins vegar sé viðbúið að tækni- og hugverkagreinar og ferðaþjónusta vaxi mun hraðar á næstu árum. Styrkur íslensks efnahagslífs felist í fjölbreytileikanum og að mismunandi eiginleikar greinanna skapi stöðugra hagkerfi.

\"Heilt yfir standa fyrirtækin í stóriðju frammi fyrir afar erfiðu starfsumhverfi,\" segir Almar og bendir á að afurðarverð á málmmörkuðum séu lág, kjaradeilur í gangi og endurnýjanir mikilvægra raforkusamninga standi yfir. Hann segir að erfiðleikar í þessum greinum smitist út í aðra geira atvinnulífsins: \"Þetta snýst ekki bara um álver eða aðra stóriðju. Það eru miklu fleiri fyrirtæki sem finna fyrir þessu ástandi. Í kringum stóriðjuna á Íslandi hefur byggst upp gífurlega mikil og fjölbreytt starfsemi, sem hefur vaxið sérstaklega mikið á seinni árum. Þetta er orðin ein af stoðum hagkerfisins sem skapar um fjórðung gjaldeyristekna og veitir þúsundum manna vel launaða vinnu. Samkeppnishæfni þessarar greinar verður að treysta og verja“, segir Almar.

Hvað raforkumálin varðar hefur Landsvirkjun sagt að markmið fyrirtækisins sé að bjóða ávallt samkeppnishæf kjör á raforku miðað við raforkumarkaði í Evrópu með langtímasamningum, hagstæðu verði og miklu afhendingaröryggi. Ennfremur segja stjórnendur fyrirtækisins að samningar í dag þurfi að endurspegla það umhverfi sem er í dag en ekki eins og það var fyrir 20 árum.

Á árunum 2011-2012 þegar Landsvirkjun markaði núverandi verðstefnu voru algeng verð á erlendum mörkuðum um 50 til 60 dollarar á megavattstund. Almar segir að Landsvirkjun staðsetji sig vel undir þessum mörkum til að vera samkeppnishæf. Í dag sé staðan sú að verð Landsvirkjunar virðist vera óbreytt á meðan verð erlendis séu allt að 50% lægri en þá, þvert á fyrri spár.