„Fólk í atvinnulífinu óttast viðbrögð Samkeppniseftirlitsins sem er að verða ríki í ríkinu,“ skrifar Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í pistli á heimasíðu samtakanna.
Hann rifjar upp að árið 2011 hafi Samkeppniseftirlitið knúið á um að fá heimild til að skjóta úrskurðum áfrýjunarnefndar Samkeppnismála til dómstóla. Það sé nánast einsdæmi í stjórnsýslunni.
„ Það er óviðunandi að fyrirtæki þurfi að verjast málflutningi Samkeppniseftirlitsins fyrir dómi með tilheyrandi kostnaði þrátt fyrir að hafa fengið endanlega og jákvæða niðurstöðu á stjórnsýslustigi.“
Nánar á mbl.is
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/05/25/segir_folk_ottast_samkeppniseftirlitid/