Óttast litla samkeppni á bankamarkaði

Samtök fjármálafyrirtækja styðja kröfuna um að stjórnvöld selji sem fyrst hlut sinn í bönkunum. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að erlend fjármálafyrirtæki nái í vaxandi mæli viðskiptum af íslenskum fjármálafyrirtækjum vegna hærri skatta og álagna sem lögð hafa verið á þau íslensku síðustu ár.
 

Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag þar sem rætt er við Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja sem segir að samtökin hafi alltaf lagt áherslu á frjálsan markað og virka samkeppni: \"Og það auðvitað gefur auga leið ef meirihluti eignarhalds á markaði er kominn á eina hönd, þá eykst auðvitað hættan á því að virka samkeppnin verði ekki sem skyldi, þannig að ég held að stjórnvöld leiti leiða til að vinna sem fyrst úr því þegar og ef staðan verður sú,“ segir Guðjón

Samtök fjármálafyrirtækja taka með þessum orðum undir herhvöt Samtaka atvinnulífsins frá því fyrir helgi, en þau telja brýnt að ríkið selji hlut sinn í íslenskum viðskiptabönkum, enda verði hann orðinn um 70 prósent um áramót þegar ríkið eignast Íslandsbanka.

Guðjón segir að á undanförnum árum hafi verið lagðir hærri skattar og álögur á íslensk fjármálafyrirtæki en gert hafi verið í nágrannalöndunum: \"Þetta hefur í raun og veru leitt til þess að erlendir aðilar ná í vaxandi mæli viðskiptum af hérlendum fjármálafyrirtækjum á grunni þessarar ójöfnu samkeppni, þannig að virk samkeppni er alltaf það sem skiptir mestu máli í öllum viðskiptum.“