Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR kveðst óttast að stjórnvölkd setji lög á verkföll þeirra fjölmennu hópa sem nú eru ýmist búnir að leggja niður störf eða eru í þann mund að gera það. Viðsemjendur félaganna treysti greinilega á inngrip stjórnvalda.
Ólafía er ekki eini verkalýðsforinginn þessarar skoðunar, en látið hefur verið að því liggja að lítill samningsvilji atvinnurekenda , hvort heldur er hjá ríkinu eða á almennum vinnumarkaði megi rekja til þeirrar fullvissu að stjórnvöld grípi í taumana á næstu dögum.
Horfur á vinnumarkaði hafa ekki verið jafn dökkar um langt árabil. Þriðjungur þjóðarinnar stefnir í verkföll, fjöldi fiskvinnsla og matvælafyrirtækja líður fyrir ástandið, fasteignamarkaðurinn á í verulegum vandræðum sakir verkfalls lögmanna á sýslumannsskrifstofum, ferðaþjónustan óttast gríðarlega mikinn skaða í upphafi aðalvertíðarinnar og heilbrigðiskerfið höktir sakir vinnustöðvunar geislafræðinga - og býr sig nú undir enn meiri vandræði, ef ekki hættuástand, vegna yfirvofandi verkfalls hjúkrunarfræðinga sem segjast vilja hlutfallslega sömu launahækkun og læknar fengu nýlega.