Sigurjón Jónasson, formaður Félags flugumferðarstjóra, segir félagið ekki ætla í verkfall í yfirstandandi kjarabaráttu. Þeir óttist að að sett verði lög á verkfall, komi til þess.
Sigurjón og Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skiptust á skoðunum um kröfur flugumferðarstjóra og afleiðingar verkafalls þeirra.
Sigurjón sagði að það vanti marga flugumferðarstjóra til starfa. „Við gætum ráðið tuttugu til starfa strax á morgun biðust okkur það,“ sagði Sigurjón. Hann sagði að stéttinn væri að þynnast út og þrátt fyrir gífurlegan vöxt í flugi um íslenska flugumferðarsvæðið hafi flugumferðarstjórum fjölgað lítið.
Þorsteinn sagðist óttast að ef gengið verði að háum kröfum flugumferðarstjóra muni aðrar stéttir verða ósáttar.
„Forseti Alþýðusambandsins hefur boðað það þegar kemur til endurskoðunar kjarasamninganna í febrúar á næsta ári.“