"Nú er vá fyrir dyrum, hætta steðjar að hinum kynhreina stofni hænsna," skrifar rithöfundurinn Guðmundur Brynjólfsson í stórskemtilegum pistli sínum á hringbraut.is og leggur út af kjötskortinum í landinu. Hann býr á Eyrarbakka, heimili landnámshænunnar - og óttast innrás aðframkominna kjötæta.
Pistlar Guðmundar á hringbraut.is hafa vakið verðskuldaða athygli, enda er penni hans jafn hvass og hann getur verið íronískur: Guðmundur skrifar í þessum nýja pistli sínum að auðvitað muni það verða svo á næstu dögum að kjötætur muni renna hýru auga til flottustu hæna landsins í heimabæ hans: "Fregnir herma að vargflokkar úr Reykjavík undirbúi nú herför austur um Þrengsli til þess að slátra hreinræktuðum hænsnum í húsagörðum hér á Eyrarbakka. Langsoltnir borgarbúar vopnaðir hnúajárnum og snjallsímum hyggjast drepa hér allt fiðrað fé og draga þannig um barkann á okkar aðþrengda samfélagi sem er þannig statt í veröldinni að nágrannar okkar hyggjast búa til eftirlíkingar af húsum okkar í þeirri vissu að við munum í ætlaðri vesöld éta ofan af okkur kofana."
Guðmundur vill halda uppi vörnum, "Hér verður barist til síðasta eggs. Eða hænu," skrifar hann og segir spurningu hvort komi á undan hinu. "Nú þegar hafa menn safnað saman öllum vopnum byggðasafnsins og munar þar heldur betur um öxina sem notuð var til að höggva til viðina í Húsið hér í den, en hún er svo blaðstór að dró fyrir sólu á Stokkseyri þegar níu hraustir fangaverðir á frívakt hófu hana á loft á æfingu í gærdag."
Ef allt annað þrjóti í vörnum Eyrbekkinga muni verða hleypt úr úr fanganýlendunni og mætist þá herirnir á Óseyrarbrúnni, sunnamenn gegn borgarliði, því: "Hænurnar fá þeir ekki."