Óttast fleiri e. coli sýkingar - þórólfur: „enginn svona veikur eins og þessi börn“

Grunur leikur á að fleiri séu smitaðir af E. coli bakteríunni, en á dögunum var greint frá því að fjögur börn hefðu smitast. Þetta staðfestir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við Morgunblaðið í dag. Í alvarlegum tilfellum getur smit valdið nýrnabilun og blóðleysi.

„Það er verið að leita víðar núna. Þegar við förum að leita meira þá förum við að finna meira en það er enginn sem er svona veikur eins og þessi börn,“ segir Þórólfur og bætir við að ekki liggi ljóst fyrir hvort fleiri hafi smitast en að verið sé að kanna það.

Börnin eru á aldrinum fimm mánaða til sjö ára og tvö þeirra voru lögð inn á Barnaspítala Hringsins með nýrnabilun. Annað þeirra var útskrifað á föstudaginn. Hin tvö eru höfð undir eftirliti utan spítala. Börn veikjast frekar af völdum E. coli bakteríunnar enda viðkvæmari fyrir henni.

Útilokar ekki varanleg áhrif

Viðar Örn Eðvarðsson, læknir á spítalanum, segir í samtali við Morgunblaðið að meðferð barnsins sem liggi enn á spítalanum gangi vel. „Þetta gengur samkvæmt áætlun eins og við má búast. Þetta er hættulegur sjúkdómur sem er verið að meðhöndla og það gengur vel.“

Hann útilokar ekki að smitin geti haft varanleg áhrif á heilsu barnanna:

„Flestir ná sér vel en það er ekki útilokað að nýrnastarfsemin geti verið eitthvað skert þegar frá líður. Það er ómögulegt að segja á þessu stigi málsins og það verður bara að fá að koma í ljós. Við munum fylgja börnunum vel eftir.“

Ein uppspretta

Þórólfur segir að unnið sé eftir því að uppspretta smits barnanna sem sýktust sé ein. Uppruninn er talinn vera í Bláskógabyggð í Árnessýslu og unnið er út frá því að önnur möguleg tilvik komi sömuleiðis þaðan. Enn er þó óljóst hvaðan smitið kemur nákvæmlega og unnið er að greiningu á því.

Fólk getur smitast af bakteríunni með menguðum matvælum eða vatni, með beinni snertingu við dýr eða úrgang dýra.