Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands segist hafa hafa vitað af því að verið væri að undirbúa hryðjuverkaárás í landinu. Hann segir hættuna ekki liðna hjá - hryðjuverkamenn væru að skipuleggja fleiri árásir í öðrum Evrópulöndum.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, upplýsti í morgun, að því er segir í frétt RÚV um málið, að bresk yfirvöld hefðu komið í veg fyrir sjö árásir síðasta hálfa árið.
Valls ræddi við RTL-útvarpsstöðina eftir umfangsmiklar aðgerðir hjá sérsveit frönsku lögreglunnar í nótt.
BFM- fréttastofan kvaðst hafa heimildir fyrir því að lögreglan hefði fundið þungavopn í frönsku borginni Lyon og að fimm hefðu verið handteknir. AFP-fréttastofan segir að lögreglan hafi fundið vopnabúr í aðgerðum sínum.