Óttast fjöldagjaldþrot svínabænda

Talsmenn svínabænda í landinu óttast fjöldagjaldþrot í greininni verði deila dýralækna og viðmsejnda þeirra hjá ríkinu ekki leyst á allra næstu dögu. Verkfallið hafi raunar nú þegar haft óafturkræf áhrif á litlum fjölskyldubúum sem geta ekki lengur greitt af skuldum eða aðföngum.







Verkföll dýralækna eru farin að hafa mikil áhrif víða í sveitum og ýmis þjónusta við bændur liggur niðri. Þá er farið að skorta kjöt í matvörubúðum, ekki aðeins af svínum, heldur og af nautum og kjúklingi sem hefur ekki verið slátrað í tæpan mánuð.






 







Verkfall dýralækna sem starfa hjá ríkinu hefur nú staðið frá 20. apríl. Verkfallið nær til mjög margra þátta í landbúnaði því allt eftirlit sem unnið er af þessum dýralæknum liggur niðri. Þannig er til dæmis ekki hægt að slátra dýrum nema að viðstöddum dýralækni á vegum viðeigandi stofnunar.


Talsmenn svínabænda segja algerlega ólíðandi að ein stétt ríkisstarfsmanna geti eyðilagt margra ára eða jafnvel áratugalangt uppbyggingarstarf í jafn viðkvæmri atvinnugrein og svínarækt sé, en ekki sé einasta miklu til hennar kostað heldur geti tekið mörg ár að vinna sig út úr marga vikna tekjutapi fyrir nú utan hvaða áhrif verkfallið hefur á velferð dýranna. Þeir lýsa fullri ábyrgð á hendur dýralæknum sem þeir segja að taki hag sinn fram yfir velferð skjólstæðinga sinna og það sé þvert á eðli og allar skyldur starfsins.