Bjarni Benediktsson segir Sjálfstæðisflokkinn hafa skaðast af loforðum um þjóðaratkvæði um framhald viðræðna við Evrópusambandið og svo slit ríkisstjórnarinnar á viðræðunum.
Bjarni er gestur Þjóðbrautar í kvöld og segir þar að hann óttist ekki framboð Viðreisnar, ekkert frekar þó Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verði í framboði fyrir Viðreisn.
Bjarni er sannfærður um Sjálfstæðisflokkurinn eigi drjúgt inni.
Bjarni Benediktsson er í ítarlegu viðtali í kvöld, viðtali sem hefst um 21:40.