Óttast dauðsföll vegna verkfalls

Rúmlega þrjúþúsund manns bíða eftir myndgreiningu á Landspítalanum, þar af margt bráðveikt fólk. Veittar hafa verið 200 undanþágur þann heila mánuð sem verkfall geislafræðinga hefur staðið yfir. Hundrað sjúklingum hefur verið hafnað.


Guinnar Bjarni Ragnarsson yfirlæknir lyflækninga krabbaeina á Landspítalanum segir í Fréttablaðinu í dag að hættan á því að einhver skaðist eða jafnvel deyi af völdum vinnustöðvunarinnar á sjúkrahúsinu sé raunveruleg. "Staðan er bara hrikaleg.," segir hann. Þjónustan hefur verið skorin niður fyrir ásættanleg mörk," segir hann og bendir á dæmi þess að rof hafi orðið á krabbameinslyfjameðferð. "Það eru þó nokkrir sjúklingar þar sem ekki er hægt að byrja krabbameinslyfjameðferð vegna þess að nauðsynlegar rannsóknir vantar og biðlistar hafa lengst eftie geislameðferð."


Að sögn læknisins bíða enn sex sjúklingar eftir því að hefja meðferð við krabbameini sem hefur verið frestað í fimm vikur eða frá upphafi verkfalls.