Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styðja framboð Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu, til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra segir þá ákvörðun ekkert hafa að gera með kvartanir frá barnaverndarnefndum yfir framkomu Braga. Bragi sjálfur segir stuðningin sýna að ekkert hafi verið hæft í ásökununum.
Þorsteinn sagði við Rás 2 í morgun að í ljósi þessara ummæla sé nauðsynlegt að gera málið upp og birta niðurstöðu rannsóknar ráðuneytisins sem hófst í hans embættistíð.
„Það hlýtur jú að vera þannig, er það ekki, að þegar verið er að lýsa yfir stuðningi við umsókn fyrrverandi forstjóra í starf á alþjóðavettvangi, að í því felist þá fullur stuðningur við hann og í leið þá þau vinnubrögð sem þarna var kvartað yfir. Þá er ekkert óeðlilegt að spyrja: Er komin niðurstaða í þetta mál og hver var niðurstaða ráðuneytisins?“ sagði Þorsteinn.