Hætta á að landspítalinn lamist

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga efnir til atkvæðagreiðslu á næstu dögum um boðum ótímabundins verkfalls hjá ríkinu frá og með 27. maí næstkomandi. Ef af verkfallinu verður hefði það lamandi áhrif á starfsemi Landspítalans sem enn er að vinda ofan af vandanum vegna læknaverkfalls fyrr á árinu.


Ólafur G. Skúlason formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir það langt á milli samningsaðila að varla sé nokkur von um að samningar takist á næstu vikum; hjúkrunarfræðingar séu því nauðbeygðir til að kanna hug félagsmanna til verkfalls. Þeir vilja fá samsvarandi hækkanir launa í sinn hlut og læknar fengu nýverið og segir Ólafur mikinn hug og samstöðu í sínu fólki.


Ef allt fer á versta veg á vinnumarkaði á næstu vikum er þriðjingur þjóðarinnar á leið í verkfall. Tímabundnar vinnustöðvarnir Starfsgreinasambandsins eru farnir að segja til sín úti á landi, verkfall Bandalags háaskólamanna hefur skapað mikil vandræði í matvælavinnslu og lamað mikilvæga þjónustu hjá sýslumannsembættum - og þá liggja í loftinu aðgerðir af hálfu Flóabandalagsins og verslunarmanna.


Verkföll starfsmanna innan BHM hafa nú þegar valdið margvíslegum vandræðum á spítölum svo fresta hefur þurft fjölda aðgerða, þar æá meðal á mjög veiku fólki, en sthórnendur Landspítalans segjast ekki getað hugsað út í það ef hjúkrunarfræðingar bætast í þann hóp sem leggur niður vinnu.