Óttast að læknar muni ekki þora að tjá sig séu þeir ósammála stjórnvöldum

„Mikil áhersla hefur verið lögð á það á Covid-tímum að skylt og rétt sé að hlýða sérfræðingum enda hafi þeir vit á hlutunum. Svo sannarlega ber að hlusta á sérfræðinga en hins vegar gleymist furðu glatt að þeir eru ekki allir sammála. Sérfræðingarnir sem eru ósammála Covid-aðgerðum stjórnvalda fá hins vegar lítið sem ekkert vægi í umræðunni, skoðanir þeirra eru talaðar niður eða jafnvel látið eins og þeir séu ekki til.“

Svona hefst leiðari Kolbrúnar Bergþórsdóttur sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Í honum fjallar hún um sérfræðinga sem tjá sig um mál tengd heimsfaraldrinum, sem hafa skoðun sem stangast á við almenningsálitið.

Kolbrún segir að sóttvarnayfirvöld hafi gjarnan beðið um gagnrýni, en þegar hún hafi komið hafi gjarnan lítið verið gert úr þeim sem gagnrýnir. Í því samhengi minnist hún á Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla, og segist vona að það sama gerist ekki við Ragn­ar Freyr Ingvars­son, sér­fræðing­ í lyf- og gigt­ar­lækn­ing­um og fyrr­ver­andi yf­ir­mann Covid-göngu­deild­ar Land­spít­ala, en hann hefur talað fyrir frekari afléttingum á sóttvarnarreglum.

„Það er mikilvægt að læknar tjái sig um Covid-ástandið, hvort sem þeir vilja ganga fullkomlega í takt við aðgerðir sóttvarnayfirvalda eða fara aðrar leiðir. Það má allavega ekki verða þannig að læknar veigri sér við að tjá sig af ótta við að vera kallaðir inn á teppi hjá yfirboðurum sínum og fái þar skammir fyrir að hafa „rangar“ skoðanir.“ segir Kolbrún.

Í lok pistils síns segir hún mikilvægt að fólk hlusti á ólíkar raddir, og að málefnaleg umræða þurfi að eiga sér stað.

„Í erlendum fjölmiðlum má einstaka sinnum sjá viðtöl við sérfræðinga sem eru ósammála þeim leiðum sem stjórnvöld í landi þeirra hafa valið að fara. Þeir tala til dæmis gegn útgöngubanni, hafa efasemdir um gagnsemi þess að almenningur noti grímu, eru fylgjandi bólusetningum en segja um leið ónauðsynlegt að bólusetja ung börn. Þessir sérfræðingar eru ósammála reglum sem sóttvarnayfirvöld hafa mælt með og stjórnvöld fylgt. Það ætti að vera sjálfsagt og eðlilegt að hlusta á rök þessara sérfræðinga í stað þess að láta eins og þeir séu hluti af hvimleiðum og of fjölmennum hópi afneitunarsinna sem eru uppfullir af samsæriskenningum.

Í þessum málum, eins og öðrum, þarf að eiga sér stað málefnaleg umræða, án æsings og upphrópana.“

Hægt er að lesa pistil Kolbrúnar í heild sinni hér.