Óttast að fyrirtæki flýi vaxtamuninn

Íslensk sprotafyrirtæki kjósa frekar að setja upp starfsemi erlendis, vegna hárra vaxta á Íslandi, að því er Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir, en þau hafa gagnrýnt ákvörðun Seðlabanka Íslands um hækkun stýrivaxta.
 

Eins og fram kom í fréttum Hringbrautar í gær afréð peningastefnunefnd bankans að hækka stýrivexti úr 5,0 prósentum í 5,5 prósent: \"Að sjálfsögðu þarf að bregðast við þenslumerkjum,\" sagði Almar í fréttum RÚV í gærkvöld en bætti því við að samtökin sem hann veitti forstöðu væru hins vegar að benda á það að vaxtamunur, munur innlendra vaxta og vaxta í nágrannaríkjum, væri orðinn gríðarlega mikill: \"Það hefur afleiðingar sem eru óæskilegar,“ sagði Almar í fréttunum í kvöld.

Almar sagði enn fremur: \"Seðlabankinn bendir til að mynda á það að það þurfi sérstaklega að bregðast við innflæði skammtímafjármagns frá útlöndum vegna hárra vaxta á Íslandi. Á sama hátt bendum við á að fyrirtækin sem eru í alþjóðlegri samstarfi, í vexti í kringum sprotafyrirtæki og þess háttar, kjósa frekar að setja upp starfsemi erlendis heldur en innanlands þegar vaxtarmunur er orðinn svona hár.“

Hann segir vaxtarmun enn vera að aukast og það sé áhyggjuefni. Hann segir einnig að háar launahækkanir hafi áhrif á verðlag og telur að Seðlabankinn ofmeti þau áhrif: \"Það hefði ekki verið skynsamlegt að lækka vexti en óvissan hefði átt að vega þyngra í ákvörðun bankans. Því miður er staðan sú að yfir sjö til átta ára tímabili á Íslandi hafa fjárfestingar hér verið of litlar og við verið í fjárfestingaþörf. Þeirri þörf þurfum við að bregðast við þó að Seðlabankinn hafi það mikilvæga markmið að halda verðlagi í landinu stöðugu,“ sagði Almar í fréttum RÚV í gærkvöld.