\"Einn er sá hópur fólks sem þó er líklegur til að taka ekkert mark á viðvörunum af þessu tagi,\" segir pistlahöfundurinn Ólafur Jón Sívertsen um hættuna af stórfeldri seðlaprentun þegar ríkið fær sinn skerf af slitum föllnu bankanna. \"Það eru framsóknarmenn,\" skrifar hann.
Pistlar Ólafs Jón á hringbraut.is hafa vakið athygli fyrir snarpa samfélagsgreiningu - og sá nýjasti er þar engin undantekning á. Þar geldur hann varhug við því að peningaprentun af þessu tagi fái að vaða yfir samfélagið með skelfilegum afleiðingum í formi verðbólgu sem myndi éta upp allan ávinning þjóðarinnar af slitum gömlu bankanna. Það má greina á skrifum hans að þar treysti hann engan veginn gömlu maddömunni: \"Forysta Framsóknar er þekkt fyrir að kaupa sér atkvæði með fjáraustri út í landsbyggðarkjördæmin þar sem dýru atkvæðin liggja,\" skrifar Ólafur Jón.
Honum er nokkuð niðri fyrir: \"Framsóknarflokknum hefur tekist ótrúlega oft að koma fram með loforð rétt fyrir kosningar sem hafa oftar en ekki bjargað þeim frá fylgishruni og jafnvel skapað sigra eins og þann sem náðist fyrir kosningarnar 2013 út á loforð um 300 milljarða niðurfærslu skulda þeirra fjölskyldna sem verst voru staddar. Efndirnar urðu svo 80 milljarða leiðrétting. Sama var uppi á teningnum fyrir nokkrum árum þegar Framsókn kom fram með á síðustu stundu fyrir kosningar loforð um 90% húsnæðismálalán til almennings sem þó var staðið við og olli mikilli þenslu og átti sinn þátt í hruninu 2008.\"
Þetta muni gerast aftur af því flokkurinn sé í sárum, mælist með 9% fylgi - og þurfi á öllum sínum vopnum að halda: \"Þeir munu einskis svífast í aðdraganda næstu kosninga að freista þess að kaupa sér fylgi með því að lofa öllum öllu og moka peningum í misgáfuleg verkefni, einkum úti á landi,\" skrifar Ólafur Jón.
Og svo er það bara tíminn - og ekki sá með stóra téinu - sem mun leiða það í ljós hvort pistlahöfundurinn muni reynast hafa eitthvað til síns máls.