Óttast að allt verði í rusli eftir brexit

Bresk yfirvöld hafa nú hafist handa við að undirbúa sig undir útgöngu úr Evrópusambandinu án samnings og er þar sérstaklega litið til sorphirðu en umhverfisstofnun landsins hefur gífurlegar áhyggjur af því að rotnandi rusl muni gera Bretum lífið leitt, gangi Bretar samningslausir úr ESB.

Er ástæða þess að alþjóðleg leyfi breskrar sorphirðu til útflutnings á þarlendu sorpi myndu falla úr gildi samstundis þann 29. mars næstkomandi ef að samningar verða ekki gerðir við Evrópusambandið um útgöngu og óttast forsvarsmenn bresku umhverfisstofnunarinnar að mikið magn rotnandi sorps muni ekki eiga sér neinn samastað.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/ottast-a-allt-veri-i-rusli-eftir-brexit