„Ég geng iðulega um Elliðaárdalinn eða Laugardalinn á kvöldin. Þegar maður mætir fólki, býður maður stundum gott kvöld eða kinkar kolli. Vinalegt. Oftast. En alltof oft hef ég orðið vitni að því þegar maður annað hvort mætir einsamalli konu eða lendir á eftir henni á göngustíg, að andrúmsloftið verður annað. Ég hef séð ótta, undirbúning varnarviðbragða og óöryggi.“
Þannig hefst pistill eftir Steingrím Sævarr Ólafsson. Hefur pistillinn vakið mikla athygli á samskiptamiðlum. Steingrímur segir að karlmenn verði að vinna í að breyta því að konur upplifi ótta við aðstæður eins og lýst er hér að ofan. Steingrímur segir:
„Sem karlmaður skammast ég mín niður í tær fyrir þá meðbræður mína sem í gegnum aldirnar hafa skapað þær aðstæður að konur þurfi að vera sérstaklega varar um sig og tortryggja alla karla sem þær mæta einar,“ segir Steingrímur og heldur áfram:
„Sem karlmaður hef ég aldrei þurft að upplifa ótta eða óöryggi við það að ganga einsamall og ég get ekki ímyndað mér hvernig tilfinning það er að þurfa að fara í gegnum lífið með slíkt í farteskinu. Alltaf.“ Steingrímur segir að lokum:
„Sem karlmaður veit ég líka að það er undir okkur komið að breyta þessu - og við hefðum átt að vera búnir að því fyrir svo lifandi löngu. En höfum ekki. Gerum það núna.“