Félagsstofnun stúdenta, sem á og rekur Bóksölu stúdenta, hefur ráðið Óttarr Proppé sem verslunarstjóra Bóksölunnar. Hefur hann störf þann 1. júní næstkomandi.
Í tilkynningu frá bóksölunni segir að Óttarr hafi víðtæka þekkingu og reynslu af bóksölu en hann starfaði hjá Almenna bókafélaginu, Eymundsson og Máli og menningu á árunum 1987 til 2010. Frá árinu 2010 til ársins 2017 starfaði Óttarr á vettvangi stjórnmála með Besta flokknum og Bjartri framtíð; í borgarstjórn, sem alþingismaður og sem heilbrigðisráðherra. Hefur hann sinnt ýmsum trúnaðar- og nefndarstörfum í gegnum tíðina. Óttarr er tónlistarmaður og lagahöfundur, en hefur einnig starfað sem leikari, handritshöfundur, hljóðmaður og framleiðandi við kvikmynda- og heimildarmyndagerð.