Óttarr proppé leiðir bjarta framtíð

Ótt­arr Proppé er nýr formaður Bjartr­ar framtíðar en hann  bauð sig einn fram í starfann og var því sjálf­kjör­inn á árs­fundi flokks­ins í dag. Hann segir þessa upphefð vera mikinn heiður fyrir sig.

\"Ég vil leggja áherslu á að okk­ar gildi og grunn­hugs­un verði skýr­ari, þar með er ég ekki að segja að ég upp­lifi að við höf­um ekki verið að starfa í anda henn­ar held­ur kannski þurf­um við að vera skýr­ari þegar við höf­um verið að gera það. Ég og aðrir í for­yst­unni þurf­um líka að hjálpa þess­ari þróun áfram að koma mönn­um bet­ur sam­an, að auka sam­talið og stytta boðleiðirn­ar í sam­tal­inu. Við þurf­um að skýra fyr­ir al­menn­ingi, sem er kannski ekki að átta sig al­menni­lega á okk­ur, fyr­ir hvað við stönd­um,“ seg­ir Ótt­arr við mbl.is í dag og bæt­ir við: \"Þessi áhersla okk­ar á að starfa öðru­vísi í póli­tík, okk­ur er al­vara með henni en við höf­um kannski tekið henni full al­var­lega í okk­ar störf­um og leyft öðrum að skil­greina okk­ur.“

Aðspurður um hvernig hann sjái fyr­ir sér að flokk­ur­inn þró­ist og þrosk­ist und­ir hans stjórn seg­ir Ótt­arr við fréttavefinn að hann líti alls ekki á sig sem eina stjórn­and­ann og það sé mik­il­vægt að starfa eft­ir því. Að í stjórn­un­art­eym­inu séu meðal ann­ars tveir for­menn, þing­flokks­formaður og for­ystu­menn í sveit­ar­stjórn­um. Hann seg­ir að hlut­verk flokks­ins sé að virkja al­menn­ing, ekki bara rétt fyr­ir kosn­ing­ar, til þess að taka þátt í stjórn­mál­um þó eng­inn verði neydd­ur til þess. Al­menn­ingi þurfi þó að líða eins og hann sé vel­kom­inn í heim stjórn­mál­anna.