Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar, er tilbúinn að taka að sér forystustörf í flokknum verði hann kallaður til þess. Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, segist einnig vera reiðubúin til að verða formaður flokksins.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en raunar segir Óttarr við Fréttablaðið í dag að hann hafi ekki persónulegan metnað fyrir því að verða formaður þótt hann sé opinn fyrir því að \"taka ábyrgð á Bjartri framtíð“. Þar er einnig rætt við Brynhildi Pétursdóttur, þingmann Bjartrar framtíðar, sem segist ekki vera búin að ákveða hvort hún sækist eftir formennsku en neiti því ekki að það hafi verið rætt.
Óttarr, Guðlaug og Brynhildur bætast þar með í hóp með Heiðu Kristínu Helgadóttur, annars stofnanda Bjartrar framtíðar og varaformanns flokksins, sem hugsar það nú stíft að bjóða sig fram til formanns.
Greint var frá því um helgina að Guðmundur Steingrímsson þingmaður muni hætta sem formaður Bjartrar framtíðar þann 5. september næstkomandi þegar ársfundur flokksins verður haldinn í Reykjavík. Róbert Marshall mun einnig segja af sér sem þingflokksformaður flokksins. Er þetta sameiginleg ákvörðun þeirra og vilja þeir með þessu veita öðrum svigrúm til að stýra flokknum.
Síðastliðinn fimmtudag hélt flokkurinn fund þar sem staða flokksins var rædd. Um sjötíu manns mættu á fundinn og þar tilkynnti Guðmundur að hann myndi ekki bjóða fram krafta sína áfram sem formaður flokksins.