Geðlæknirinn Óttar Guðmundsson segir tillögu um að Ísland verði leiðandi í rannsóknum á hugvíkkandi efnum sem nú liggur fyrir á Alþingi bera vott um forræðishyggju og æpandi vanþekkingu á eðli vísindarannsókna.
Óttar skrifaði bakþanka í helgarblað Fréttablaðsins um hugvíkkandi efni.
„Það er í tísku að kasta rýrð á hefðbundnar geðlækningar. Viðkomandi þingmenn vilja vera hipp og kúl og boða nýtt fagnaðarerindi,“ segir Óttar meðal annars í bakþanka sínum og bætir við að gamlir læknar hafi lært á langri ævi að engar töfralausnir séu til.
„Öll lyf hafa sínar aukaverkanir. Frjáls og óheft notkun ofskynjanaefna til lækninga yrði fljót að snúast upp í andhverfu sína,“ segir Óttar jafnframt.
Allt fari í hringi og nú hafi ofskynjanaefni gengið í endurnýjun lífdaga sem töfralausn við öllum mögulegum geðkvillum.
„Fjölmargir hafa vitnað um lækningamátt þessara efna. Engar óyggjandi rannsóknir liggja þó fyrir um yfirburði þessara efna gagnvart öðrum meðferðarúrræðum. Geðlæknar vara við auglýsingamennsku og popúlisma í kringum þessi efni þar sem þau séu á engan hátt fullrannsökuð.
Margir gamlir fíklar hafa barist fyrir notkun hugbreytandi lyfja. Neysla ofskynjunarefna í lækningaskyni hljómar mun betur en hversdagsleg misnotkun. Enn og aftur er í tísku að kafa í sálardjúpin og finna sjálfan sig og tala í innihaldslausum frösum,“ segir Óttar en pistil hans má lesa í heil sinni á vef Fréttablaðsins.