Óttar Guðmundsson geðlæknir slær á létta strengi í Fréttablaðinu í dag þar sem hann fjallar um hugmyndina menningarlegt arfnám.
Í pistlinum rifjar hann up grímuball í Dansskóla Hermanns Ragnars frá árinu 1958 þegar hann var klæddur sem sjóræningi.
Í ljósi breyttra viðhorfa ákvað ég fara á fund í Sjálfshjálparsamtökum um pólitíska rétthugsun. Ég tók til máls og sagðist sjá eftir „menningarnáminu“ á grímuballinu.
„Ég var með lepp fyrir auga og alhæfði þannig um útlit sjóræningja. Þetta var niðurlægjandi fyrir þá og aðra sjómenn!“