Óttar Proppé formaður Bjartrar framtíðar segir að það hafi komið sér á óvart að bæði Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Á tímum óvissu sé skrýtið að gerendur óvissunnar skuli upplifa sig sjálfa sem eina svarið. Vísar Óttar þar til hrunsins og eftirmála þess. Framboð Davíðs muni leiða til kynslóðabaráttu. Þetta kom fram í beinni sjónvarpsútsendingu á Hringbraut í morgun.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sat einnig fyrir svörum á Hringbraut í morgun í Þjóðbraut Sigurjóns M. Egilssonar. Hún ræddi áhrif þess að svo áberandi persónuleikar bjóði sig til leiks. Hún telur að veisla sé fram undan hjá fjölmiðlum á næstu viku í umfjöllun um baráttuna.