Alls vilja 60 manns á ári hefja greiningu hjá transteymi Landspítalans. Í upphafi var aðeins búist við tveimur á ári. Þetta kemur fram í viðtali við Óttar Guðmundsson geðlækni, sem tilheyrir transteyminu, í Læknablaðinu.
Greiningartímabilið tekur um 6 mánuði. Viðkomandi þarf að hitta geðlækni, sálfræðing og fleiri sérfræðinga eftir þörfum. Í kjölfarið er svo tekin ákvörðun um framhaldið og gerðar eru tilvísanir til annarra lækna, þar á meðal lýta- og þvagfæraskurðlækna.
„Ótrúleg sprenging hefur orðið í málaflokki transfólks,“ sagði Óttar. „Þegar ég byrjaði voru kannski þrjár til fjórar transkonur á móti hverjum einum transmanni en núna eru hlutföllin jöfn.“ Engin sérstök skýring er á þessu en tölurnar eru í samræmi við alþjóðlega þróun. Mikil vakning hafi verið í samfélaginu um kynvitund og kynsegin fólk.
„Kyn-aminn er svo sterkur að fólk er tilbúið að fara í gegnum þessa erfiðu greiningu og sársaukafullu meðferð. Einstaklingunum líður miklu betur þegar þeir eru komnir í það kyn sem þeir tilheyra, sem er gefandi að upplifa með þeim,“ sagði Óttar.