Það er heldur betur vaðið á súðum í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld og tilvalið að hringa sig niður í sjónvarpssófann í hríðarkófinu og hlusta og horfa á einn helsta geðlækni landsins segja frá þeim mörgu mönnum sem í honum búa - og það er allt látið flakka.
Óttar Guðmundsson er einn kunnasti geðlæknir landsins, en ástríða hans í lífinu hefur brunnið fyrir svo mörgu að heita má að ekkert mannlegt hafi verið honum óvfiðkomandi á þeim rífu sjötíu árum sem hann hefur spókað sig um í þessu lífi.
Allt saman byrjaði þetta á gömlu kommaheimili í Laugarnesinu og þótt hann yrði sjálfur vissulega róttækur náði hann aldrei þeim árangri í róttækninni sem hann vildi. Svo prófaði hann allt, margar tegundir læknisfræði, hvert hjónabandið af öðru, börn með hverri konunni af annarri, drykkjuskap og afvötnun - og svo aftur drykkjuskap og afvötnun; hann segist hafa verið hræðilegur drykkjumaður, en þess á milli sökkti hann sér niður í pælingar um kynlíf og dauða, fíknir og geðslag og er þá fátt eitt nefnt hjá manni sem leggur áherslu á eitt öðru fremur; að njóta lífsins, hafa það skemmtilegt - og breyta strax um kúrs, ef það sem hann er að gera hverju sinni, er ekki skemmtilegt. Og stundum hefur hann neyðst til að skella hurðum á þessum ferli, á leiðinni frá því leiðinlega til þess skemmtilega, en það er nú bara vegna þess, eins og hann segir í viðtali kvöldsins, að hann er svo mikil dramadrottning.
Þeir Óttar og Sigmundur Ernir setjast niður klukkan 20:00 í kvöld.