Eygló óttaðist ekki tap gegn lilju

Eygló Harðardóttir félags – og húsnæðismálaráðherra og oddviti Framsóknarflokksins í Suðvestur kjördæmi segir á Þjóðbraut í kvöld að fundur flokksins síðastliðinn sunnudag hafi verið erfiður fyrir marga en Eygló dró til baka framboð sitt til varaformanns þar sem hún vildi sætta fylkingar formannsefnanna, Sigurðar Inga og Sigmundar Davíðs. Hún gaf lítið fyrir að einhver smölum eða svindl hafi átt sér stað í formannskosningunni, segir einungis að “farið var að reglum”. Engar reglur hafi því verið brotnar að hennar mati. Hún sagðist ekki hafa talið sig í tapstöðu gagnvart Lilju Dögg Alfreðsdóttur í varaformannskjörinu, hún hafi dregið sig til bara einfaldlega “af því að það var rétt”.