Í samantekt sem birtist í Fréttablaðinu í dag á biðtíma eftir félagslegri íbúð kemur í ljós að það er gríðarlegur mismunur eftir sveitarfélögum. Fjölskyldur geti þurft að bíða í rúm fjögur ár í Hafnarfirði en í Múlaþingi er biðtíminn aðeins nokkrir mánuðir.
Heilt yfir er meðalbiðtíminn fyrir einstaklingsíbúð er 28 mánuðir og 24,5 fyrir fjölskylduíbúð á landsvísu.
Samkvæmt svari ráðherra er biðtíminn eftir einstaklingsíbúð 10 mánuðir í Mosfellsbæ, 25,2 í Kópavogi, 25,8 í Garðabæ, 29,1 í Reykjavík, 33,3 í Árborg, 35,1 í Hafnarfirði og 36 á Akureyri. Langlengsti biðtíminn er á Akranesi, 48 mánuðir.
Þegar kemur að meðalbiðtíma fyrir fjölskyldur er lengsti biðtíminn í Hafnarfirði, 49,3 mánuðir.