Ótrúlegt myndband af Íslandsheimsókn kærustu Adolf Hitler

Myndband hefur á skotið upp kollinum sem tekið var á Íslandi á fjórða áratug síðustu aldar. Er það sérstaklega forvitnilegt í ljósi þess að tökumaðurinn er engin önnur en Eva Braun, kærasta Adolfs Hitlers, þáverandi einræðisherra Þýskalands. Braun giftist Hitler degi áður en þau tóku eigið líf við lok síðari heimstyrjaldarinnar árið 1945.

Aðeins fólk í innsta hring nasista vissi að Braun væri kærasta Hitlers. Hún kom hingað til lands með þýska skemmtiferðaskipinu Milwaukee sumarið 1939, rétt áður en stríðið hófst. Hún var hér í fimm daga og heimsótti Vestmannaeyjar, Reykjavík, Ísafjörð og Akureyri.

Braun var dugleg við að taka mynd og tók hún margar af þeim myndum sem til eru af Hitler og hans nánustu samstarfsmönnum. Þegar hún kom til Íslands var hún með kvikmyndatökuvél og má sjá myndefnið hér fyrir neðan. Er hún í Reykjavík á fjórðu mínútu myndbandsins.