Ótrúlegasta ökuferðin í lífi ómars

Óhætt er að segja að Ómar Ragnarsson hafi risið undir nafni sagnameistara í síðasta þætti Mannamáls á Hringbraut, en þar lýsti hann fyrir Sigmundi Erni nokkrum ótrúlegustu augnablikum lífs síns - og er þar í raun af nógu að taka.


Í fyrri fréttum úr þættinum, sem birst hafa hér á hringbraut.is, segir af Ómari hangandi fyrir algeran miskilning undir loftbelg á leið til himinhvolfa, en þá hélt kappinn að líf sitt væri á enda, en hér segir hins vegar af ökuferðinni sem gerbreytti hugsanahætti þjóðsagnapersónunnar - og færði aksturslag hennar allt út af þjóðvegunum og inn í rallíbrautirnar.


Ómar var sumsé á leiðinni ofan af Skaga eftir skemmtun þar í efra, rétt tvítugur gaurinn í vinstri umferðinni sem þá var og hét og steig pinnann eins og vorið væri endalaust. Þegar hann nálgaðist brúna yfir Úlfarsá, sem þá var ákveðið kennileiti á leið inn í borgina, sá hann að amerískur kaggi var á skrönglast þetta hægt og silalega yfir brúna. Sjálfur var Ómar þá á það mikilli ferð að hann sá snemmendis að annaðtveggja myndi gerast; hann myndi keyra aftan á bílinn eða utan í brúarstólpann, slíkur var hraðinn á rennireið hans þegar þarna var komið sögu. Ómar lýsir þvi á tilfinningaþrunginn hátt í þættinum þegar hann afréð að skárra væri að fórna eigin lífi með því að stefna á stólpann fremur en að taka annað líf með harkalegri aftanákeyrslu á saklausan mann. Þá var hann sáttur við að deyja fremur en að taka með sér annað líf.


En svo gerðist það óvænta. Rétt í þann mund sem hann hentist að brúnni varð á vegi annars framdekksins svo haganlega gerður malarbingur, sem vegheflar höfðu smám saman skilið eftir við brúarskoltinn, að bíll hans allur á ofsaferðinni lyftist snarlega upp og fór að svo búnu á tveimur hjólum yfir brúna, framhjá bílnum sem hindraði för og lenti svo á hinum dekkjunum réttu megin við rólega keyrða bílinn.


Ómari varð svo um að hann gat ekki stöðvað bíl sinn fyrr en úti á Seltjarnarnesi, en eftirmál alls þessa aksturs er að finna í klippum hér á hringbraut.is og þáttinn í heild sinni hér.