Ótrúleg tenging önnu á rúv og hildar guðnadóttur: þóttist vera óskarsverðlaunahafinn í tvö ár

Anna Marsibil Clausen dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu birti frásögn af ótrúlegri en bráðskemmtilegri tilviljun um hvernig hún og Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir tengjast. Anna Marsibil var fulltrúi Ríkisútvarpsins í Los Angeles og þótti standa sig með miklum sóma við að flytja landanum helstu tíðindi af Óskarsverðlaununum. Þá vakti einlægt viðtal sem Anna tók  við Hildi daginn eftir verðlaunaafhendinguna mikla athygli.

Eins og kemur fram hér að ofan tengjast Anna og Hildur með nokkuð óvenjulegum hætti. Anna Marsibil greinir frá á Twitter hver tengingin er og verður að segjast að þessi frásögnin er nánast lýgileg en engu að síður sönn. Við gefum Önnu Marsibil orðið:

„Þegar ég var á táningsaldri fann einn vina minna ökuskirteini. Í um tvö ár nýtti ég skirteinið til að komast inn á skemmtistaði.“

Starfsmaður skemmtistaðar stöðvaði Önnu og þótti eitthvað gruggugt við skilríkin. Hann spurði í hvaða stjörnumerki hún væri. Anna hafði ljáðst að leggja það á minnið. Anna Marsibil segir:

„Í gær tók ég mitt fyrsta sjónvarpsviðtal fyrir Ríkissjónvarpið, við konuna sem ég þóttist vera í þessi tvö ár.

Hún var nýbúin að vinna Óskarsverðlaun.“

\"\"

Í samtali við Hringbraut um hvenær hún komst að því að hún hefði haft skirteini Hildar undir höndum segir Anna Marsibil að á dögunum hefði hún verið að undirbúa enn eina umfjöllunina um Hildi ásamt Kristjáni Guðjónssyni sem stýrir lestinni á Rás 1 þegar ...

„... ég ráfaði inn á wikipedia síðuna hennar. Þar kemur fram nafnið Hildur Ingveldar Guðnadóttir. Þegar ég las það birtist myndin á bleika ökuskírteininu og (þá óvenjulega) nafnið sem ég þurfti að leggja á minnið skyndilega ljóslifandi fyrir mér!“

Þess má svo að lokum geta að ef Anna Marsibil hefði sagt starfsmanni skemmtistaðarins sannleikann, að hún væri Meyja, hefði hún líklega haldið skirteininu eitthvað lengur, því ótrúlegt en satt, þá eru bæði Anna og Hildur fæddar í merki Meyjunnar.