Ótrúleg hundasaga viðars eggerts

„Mér hefði aldrei dottið í hug að ein­hver myndi stela hund­in­um mín­um. Þú get­ur rétt ímyndað þér hvað við vor­um þakk­lát­ir þegar okk­ur var tjáð að ör­ygg­is­verðinum hefði tek­ist að bjarga Drakúla.\"

Þetta segir leikhúsmaðurinn þjóðkunni, Viðar Eggertsson eftir þá undarlegu reynslu að hundinum hans var stolið úr Landbankanum, af öllum stöðum, en Viðar og maður hans, Sveinn Kjartansson, eiga ár­vökr­um ör­ygg­is­verði í Lands­bank­an­um mikið að launa en sá hljóp uppi ræn­ingja sem tekið hafði hund þeirra, Drakúla, ófrjálsri hendi.

Lands­bank­inn grein­ir frá at­vik­inu á Face­book síðu sinni þar sem tekið er viðtal við Viðar og ör­ygg­is­vörðinn, Stefán El­in­bergs­son, vegna máls­ins: \"Lands­bank­inn fær mikið hrós fyr­ir þetta,\" seg­ir Viðar: \"Ég fór fram á að ör­ygg­is­vörður­inn yrði sæmd­ur titl­in­um starfsmaður mánaðar­ins fyr­ir að bregðast svona hratt og vel við.“

Þeir Viðar og Sveinn áttu er­indi í úti­bú Lands­bank­ans við Aust­ur­stræti og skildu Drakúla litla eft­ir bund­inn úti, venju sam­kvæmt, enda er ekki leyfi­legt að fara með hunda inn í bank­ann. Stefán ör­ygg­is­vörður Secu­ritas í bank­an­um, sá í gegn­um ör­ygg­is­mynda­vél utan við bank­ann að þar væri maður að klappa hund­in­um: \"Þegar hann byrjaði svo að losa hund­inn áttaði ég mig strax á því hvað væri að ger­ast og hljóp af stað,\" seg­ir Stefán. Hann náði mann­in­um á Lækj­ar­torgi og end­ur­heimti hund­inn.

Viðar og Sveinn kvarta ekki undan þessari bankaþjónustu.