Ótímabært brotthvarf illuga úr pólitík

Þorsteinn Pálsson segir að ákvörðun Illuga Gunnarssonar um að hætta í pólitík sé með öllu ótímabær. Hann hafi unnið þjóðinni mikið gagn í tíð sinni sem mentamálaráðherra.

Þetta kemur fram í nýjasta pistli Þorsteins á Hringbraut en þar segir hann að eftirsjáin sé eins og gengur mismunandi mikil eftir þeim stjórnmálamönnum sem nú hverfa af þingi - og í þeim efnum sýnist vitaskuld sitt hverjum.

Hann segir að athyglisverðugustu pólitísku umbreytingarnar sem gerðar hafi verið á þessu kjörtímabili séu þær kerfisbreytingar sem mennta- og menningarmálaráðherra hafi haft haft forystu um. Sú róttæka hugsun sem felist í styttingu námstíma og nýju námslánakerfi marki ákveðin straumhvörf.

\"Það getur verið snúið að koma á nýjum kerfum,\" skrifar Þorsteinn sem þekkir stjórnsýsluna manna best - og hann bætir við: \"En hitt er margfalt flóknara að breyta því sem lengi hefur verið fast í sessi. Kerfisbreytingar valda líka meiri deilum en ný kerfi. Þess vegna leggja ráðherrar sjaldan til atlögu við slík verkefni. Og enn fágætara er að þeir nái verulegum árangri í þeim efnum.\"

Að þessu leyti finnst Þorsteini Illugi hafa skarað fram úr öðrum ráðherrum: \"Í þessari ríkisstjórn er Illugi Gunnarsson eini ráðherrann sem hefur haft pólitískt innsæi og afl til að koma slíkum breytingum fram,\" skrifar þessi fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.

Hann ber blak af Illuga og segir að ásakanir um meinta spillingu hans og fyrirgreiðslu fyrir einkafélag eigi ekki við rök að styðjast. Hann geti ekki verið að hætta í pólitík fyrir þær sakir og þótt ástæðulaust sé að draga í efa hans eigin skýringu á brotthvarfinu, nefnilega þá að hann vilji ekki verða eilífur augnakarl í pólitík, þá sé eðlilegt að spyrja hvort hið pólitíska örendi Illuga eigi rætur í því að samherjar hans hafi ekki haft sama skilning og hann hefur sýnt í verki á mikilvægi kerfisbreytinga fyrir framfarir á Íslandi á komandi tíð.

Skrif Þorsteins má sem fyrr lesa í pistladálkinum á vef Hringbrautar.