Óþolandi brot á launafólki


Valgerður Bjarnadóttir þingmaður Samfylkingarinnar hvatti Eygló Harðardóttur félagsmálaráðherra til svara í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun, hvort Eygló hefði haft samband við aðila vinnumarkaðar vegna tíðra brota á launafólki sem ratað hafa í fréttir undanfarið. Valgerður vildi vita hvort stjórnvöld hefðu gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir ósómann eins og hún kallaði brotin.
Eygló svaraði að hluti af þenslunni á íslenskum vinnumakaði væri að einhver hluti vinnumarkaðar hefði brotið á rétti launafólks. \"Ég hef lagt ríka áherslu á að við getum stutt aðila vinnurmakaðarins til að lögbundin réttindi í kjarasamningum verði virt,\" sagði Eygló. Sú áhersla væri ein ástæða þess að þjóðin sæi mál koma upp, að þau verði sýnileg.