Það er varla að maður muni eftir því að nokkur ríkisstjórn hafi lagst jafn lágt og núverandi stjórnvöld gera með því að fresta birtingu veiðigjaldafrumvarpsins fram yfir sveitarstjórnarkosningar, frumvarpi sem hyglir helst þeim best stæðu sem þurfa vitaskuld ekkert á því að halda.
Þetta er tónninn í Þorsteini Pálssyni, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra sem er annar tveggja gesta Ritstjóranna þessa vikuna - og segir það aukin heldur mjög vafasamt að bæta einni atvinnugrein upp afkomusveiflur með þeim hætti sem frumvarpið boðar, því ekki sé það gert gagnvart öðrum atvinnugreinum og hvað þá þeim hópum sem hafa það einna verst í samfélaginu, öryrkjum og öldruðum, sem verða að þola hvaða dýfur sem er, án leiðréttinga.
Hinn gestur þáttarins, Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs segir að veiðigjaldaumræðan sé vandasöm fyrir VG, enda sýni afkoma helstu útgerðarfyrirtækja landsins það að þau þurfi ekki á ölmusu að halda frá stjórnvöldum. Hann rifjar upp harmakvein útgerðarinar sem stefndi öllum skipum sínum í land árið 2013, í tíð vinstristjórnarinnar sem hann sat í, en um vorið, eftir stjórnarskiptin, hafi þeir svo byrjað að borga sér út risaarðgreiðslurnar, svo innantómt hafi þá vælið verið um að veiðigjöld myndu stefna rekstri þeirra í voða.
Í þættinum er líka farið yfir vítt svið stjórnmálanna, einkum borgarmálanna og rýnt í sigurvegara og tapara og hvaða merkingar beri að leggja í úrslit kosninganna.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld á Hringbraut og endursýndir daginn eftir og um helgina, en eru einnig aðgeengilegir á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.