Ótal tækifæri fyrir ísland í fjórðu iðnbyltingunni

„Það eru ótal tæki­færi. Ísland er lítið land. Við erum þróað hag­kerfi með sterkt vel­ferð­ar­kerfi og alþjóð­legar rann­sóknir hafa sýnt það að áhrif sjálf­virkni­væð­ingar verða aðeins minni á vinnu­markað hjá þessum ríkjum en öðrum ríkj­u­m.“

Þetta er meðal þess sem Dr. Hug­inn Freyr Þor­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Aton og for­maður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra sem vann og birti skýrslu sem bar heitið „Ís­land og fjórða iðn­bylt­ing­in“ í byrjun síð­asta mán­að­ar, sagði í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut á þriðjudagskvöld. Kjarninn greindi frá.

Þar segir Hug­inn að Ísland búi yfir sterkum tækni­legum innviðum sem lands­menn ættu að geta nýtt sér til að ná árangri í fjórðu iðn­bylt­ing­unni. „Að auka verð­mæta­sköpun í sam­fé­lag­inu, það á að geta tek­ist vel til þar.“

Hann bendir á að til þessa hafi Íslend­ingum gengið vel að nýta sér tækni­breyt­ing­ar. Það sjá­ist ein­fald­lega á þeim mikla árangri sem landið hefur náð á síð­ustu 120 árum. Þannig að við getum alveg haldið áfram. En það eru líka fjölda­margar áskor­an­ir.“

Huginn nefnir í því sam­hengi þriðju iðn­bylt­ing­una, sem fól í sér fólst aukna upp­lýs­inga­tækni, tölvu­væð­ingu og til­komu GSM síma, svo fátt eitt sé nefn­t. 

Á örfáum árum hafi símar orðið ómissandi tæki í nútíma­sam­fé­lag­inu og haft gríð­ar­leg áhrif á líf okk­ar, ekki bara út frá atvinnu­líf­inu heldur einnig vegna sam­fé­lags­legra áhrifa á stjórn­mál, lýð­ræði og fjöl­miðla. „Fjöl­miðlar hafa gjör­breyst á örfáum árum, meðal ann­ars með til­komu sam­fé­lags­miðla og snjall­síma. Þetta er þetta upp­brot sem við ræðum meðal ann­ars í skýrsl­unn­i.“

Í starfs­hópnum sem tók skýrsl­una saman voru auk Hug­ins þau Lilja Dögg Jóns­dótt­ir, Guð­­mundur Jóns­­son, Ragn­heiður H. Magn­ús­dóttir og Krist­inn R. Þór­is­­son.

Viðtalið við Huginn í heild sinni er að finna hér: