Ingólfur Bender hagfræðingur SI-Samtaka iðnaðarins skrifar um krónuna á vefsíðu SI. Gengi krónunnar skrifar Ingólfur hækkaði um ríflega 18% í fyrra sem er mesta hækkun gengis hennar á einu ári sem mælst hefur hér á landi.
Það sem af er þessu ári hefur krónan hækkað um ríflega 9% sem er nær fimm sinnum meiri hækkun en mældist á sama tíma í fyrra. Rifja má upp að á árinu 2008 lækkaði gengi króunnar um ríflega 44%.
Þessar tölur skrifar Ingólfur sýna glögglega þann mikla óstöðugleika sem krónan hefur bæði endurspeglað og verið rótin af í íslensku efnahagslífi á ekki lengri tíma enn tæpum áratug. Sveiflan hefur gjörbreytt samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja gagnvart erlendum fyrirtækjum.
Slíkar öfgakenndar sveiflur í samkeppnisstöðu fyrirtækja eru afar slæmar fyrir framþróun fyrirtækja hér á landi og hag heimilanna og vöxt hagkerfisins í heild. Uppbygging fjölbreytts iðnaðar hér á landi undanfarna áratugi er í hættu vegna hraðrar styrkingar krónunnar síðustu misseri.
rtá