Þegar ráðherra nær ekki fram stefnu varðandi lykilstofnun á hann að segja af sér.
Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar og fv. utanríkisráðherra um Illuga Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra á Alþingi rétt í þessu.
Þar vísaði Össur í umræðu um fjárlög til þess að Illugi væri fastur með frumvarp sitt um Rúv og tekjur Ríkisútvarpsins. Sá sem ekki nyti stuðnings í eigin baklandi til stefnu væri búinn að vera pólitískt sem ráðherra. Illugi yrði að segja af sér.