Við gætum ekki rekið fyrirtækið með krónuna sem uppgjörsmynt, sagði Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf, en hann var gestur Ólafanna í samnefndum þætti á Hringbraut í gærkvöld.
Forsendan fyrir starfsemi Össurar er, að því er Jón segir í þættinum, sem sjá má hér á vef stöðvarinnar, að fyrirtækið er rekið utan lögsögu íslensku krónunnar og er gert upp í bandaríkjadal. Krónan myndi aldrei duga starfseminni.
Vaxtakostnaður Össurar er um 1% að sögn Jóns, en fyrirtækið er fjármagnað utan íslensku krónu og íslenskra vaxta, en Jón lýsir því í viðtalinu að verðtrygging sé óþekkt í starfsemi fyrirtækisins. Hann segir að Össur fjármagni sig að öllu leyti á erlendum markaði í gegnum dótturfélög og eru reistar skorður við því hversu stór hluti lánsfjárins megi renna til íslenska félagsins.
Viðtalið við Jón er skylduáhorf fyrir stjórnendur fyrirtækja og aðra áhugasama um rekstur og fjármál, en þátturinn er endursýndur í dag og um helgina.