Össur tekur jón baldvin til bæna – „margt skrítið í vestfirska kýrhausnum“

Össur Skarðhéðinsson fyrrverandi ráðherra fjallar um þriðja orkupakkann á samskiptamiðlum í dag. Þar gerir hann fyrst lítið úr því að þurfi að hafa áhyggjur verði pakkinn samþykktur. Til að tryggja að ekki sé verið að afsala sér fullveldi eða tapa yfirráðum yfir auðlindum þurfi ekki nema að taka upp eitt ákvæði í stjórnarskrá  um sameign þjóðarinnar á öllum auðlindum. Um þetta segir Össur: „Hvers vegna förum við ekki þessa leið í staðinn fyrir að hálfdrepa hvert annað með egghvössum hnífilyrðum í hvert sinn sem málið ber á góma?“

Þá rifjar Össur upp þegar hann gekk í Alþýðuflokkinn á sínum tíma þar sem voru  við stýrið, Jón Baldvin og Sighvatur Björgvinsson. Össur segir:

„Þá var eitt helsta kosningamál Alþýðuflokksins í atvinnumálum að leggja sæstreng til Skotlands og hefja útflutning á raforku. Þessi stefna var klöstruð upp í iðnaðarráðuneytinu sem flokkurinn réði þá. Ég var óðara munstraður í að skrifa greinar um rafstreng til útlanda, og halda um það ræður sem upphitari á fundum með Jóni Baldvin Nú telur Jón Baldvin að sæstrengur til útlanda stappi landráðum næst.“

 Össur segir að lokum:

„En hugmyndin um hann var á sínum tíma unnin, þróuð og kynnt í boði þessa sama fyrrum leiðtoga lífs míns. Það er margt skrítið í vestfirska kýrhausnum.....“