Össur: „Skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins er líklega sigurvegari kosninganna“

Össur Skarphéðinsson, samfélagsrýnir og fyrrverandi ráðherra, segir að hin svokallaða Skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins sé hinn raunverulegi sigurvegari nýafstaðinna Alþingiskosninga.

„Skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins er líklega sigurvegari kosninganna,“ segir Össur á Facebook og kemur með nokkur dæmi:

„Henni tókst að skjóta Gunnari Smára niður fyrir lágmarkið sem þurfti til að Sósíalistaflokkurinn kæmi að mönnum, stöðva tímabundið sigurgöngu Krisrúnar Frostadóttur inn í stjórnmálin, og kippti Viðreisn niður af góðu flugi – reyndar með utanaðkomandi aðstoð.“

Hann segir að tímasetningar útspilanna hafi einnig verið góðar:

„Útfærsla tímasetninga er athyglisverð – og frá tæknilegu sjónarmiði líklega óaðfinnanleg. Menn með áratugareynslu að störfum....“