„Þegar forsetinn gagnrýnir ríkisstjórnina – réttilega – fyrir framkomu sína gagnvart öldruðum og öryrkjum þá bregst fjármálaráðherra við með því að hóta að skera niður fjárveitingar til forsetaembættisins.“
Þetta skrifar þingmaðurinn og fyrrum utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson á eigin fésbók.
„Er ríkisstjórnin semsagt komin á þann stað að hóta þeim sem gagnrýna hana – jafnvel sjálfum forseta lýðveldisins? - Er þetta fólk ekki í lagi?“ Spyr Össur.
Tilefnið er ummæli Ólafs Ragnars í kvöldfréttum í gær sem tjáði sig um öfuga forgangsröðun fjármuna hér á landi og vísaði til þess að aldraðir hefðu byggt upp ríkidæmi landsins og ættu að njóta betri kjara sem og aðrir tekjulágir hópar.
Bjarni Benediktsson tísti þá:
„Sýnist ÓRG vilja nýja forgangsröðun. Hvað með að hætta að úthluta forsetanum milljónum fyrir stórveislur þar sem veisluborðin svigna?“
Þetta túlkar Össur sem hótun.