Össur lofar ríkisstjórnina

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra gefur forsætisráðherra og ríkisstjórninni allri klapp á bakið fyrir viðlienti hennar til að taka á móti fleiri flóttamönnum en hún hafði ákveðið í fyrstu.

Þetta kemur fram á nýjustu fésbókarfærslu þingmannsins í dag: \"Milljónir eru á flótta vegna borgarastríðsins í Sýrlandi og neyðin hefur opnað augu fjölmargra Íslendinga. Sjálfsprottið viðbragð meðal almennings vakti sterka bylgju gegn ákvörðun um að taka aðeins við 50 flóttamönnum. Ókei, öllum finnst það vitaskuld nánasarlegt hjá ríkustu þjóð í heimi; \"skrifar Össur og bætir við: \"En gefum forsætisráðherranum kredit fyrir að hlusta og ríkisstjórninni plús fyrir að samþykkja tillögu hans í dag um sérstaka ráðherranefnd um málefni flóttafólks.\"

Hann segir að í þessu felist mikil skuldbinding: \" ... og ég hef ekki trú á að þetta sé gert til að drepa málinu á dreif. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar hljóta að fylgja fjármunir til að fjölga þeim umtalsvert sem Ísland ætlar að gefa nýtt líf. Þrýstum á það. Fögnum því sem vel er gert. Málefni flóttamanna eru alls staðar viðkvæm. Það er mikilvægt að skapa eins mikinn frið og eins mikla samstöðu um þau og hægt er,\" skrifar Össur í dag.