Þannig mæltist Elsu Láru Arnardóttur, þingmanni Framsóknarflokks, í umræðu um húsnæðismál á Alþingi.
Elsla Lára var meðal annars að svara þessu sem Össur hafði sagt í ræðustól skömmu áður:
„Hér sjáum við loksins margboðað frumvarp unnið af velferðarnefnd um almennar íbúðir. Það mál tók þrjú ár. Hvað er það allt sem dvelur þennan langa orm Framsóknarflokksins? Jú, það er misklíð á stjórnarheimilinu, það er Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur móast gegn þessu máli. Hvað veldur því að þetta mál, sem við höfum öll beðið eftir, er þó komið svona langt? Það er mjög einföld skýring á því. Þetta mál er komið á þetta vinnslustig vegna þess að stjórnarandstaðan hefur verið einbeitt í því að tosa málið áfram með tilstyrk verkalýðshreyfingarinnar. Það er ekki Sjálfstæðisflokknum eða Framsóknarflokknum að þakka að málið er komið á þetta stig, það er stjórnarandstaðan sem hefur náð því á þennan punkt í dag.“