Össur: konan sem neitar að hitta forsetann og drullar af innblásnum þrótti yfir spillta elítu

„Svona konur eru fyrirmyndir,“ segir Össur Skarphéðinsson í pistli sem birtur á Hringbraut. Segir Össur að stórkostlegt hafi verið að horfa á heimsmeistaramót kvenna í fótbolta sem lauk í dag með sigri Bandaríkjanna á Hollandi. Össur segir:

„Mín vegna má RÚV hækka útvarpsgjaldið til að borga fyrir það. Meg Rapinoe, fyrirliði bandarísku kvennanna sem urðu heimsmeistarar í dag, er sannur leiðtogi sem stendur með sjálfri sér. Hún er samkynhneigð, drullar af innblásnum þrótti yfir spillta elítu Fifa, og neitar að þiggja boð Trumps forseta sem einsog vanalega reynir að klína sér yfir alla sigurvegara.“

Fyrir þetta hefur Meg Rapinoe verið gagnrýnd en gagnrýninni svaraði hún með því að verða valin leikmaður mótsins, hreppa Gullskóinn og verða heimsmeistari. Össur segir:

„Svona konur eru fyrirmyndir. Annars er merkilegt að fyrir utan að konur virðast leika mýkri knattspyrnu og ekki jafn ofbeldisfullan og kallarnir, þá eru flestar þeirra á vitsmunalegu stigi sem gerir þeim kleift að tjá sig án þess að það virðist samhengislaust rugl. Að því leytinu standa þær skör hærra en jafnvel stjórnmálastéttin á Íslandi.“