Össuri Skarphéðinssyni, fyrrum utanríkisráðherra, þykir mikið koma til Róta, nýútgefinnar bókar Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrum forseta lýðveldisins. Í ítarlegri færslu á Facebook-síðu sinni segir Össur bókina hafa rænt sig nætursvefni og segir hana á köflum meistaralega vel skrifaða.
„Í orði kveðnu er bókin skrifuð til að skýra fyrir dætrum hans uppruna þeirra og ættfólk á Vestfjörðum en snýst fljótt upp í sjálfsrannsókn,“ skrifar Össur. „Á síðasta hluta æviskeiðsins virðist höfundurinn í fyrsta sinn vera að horfast í augu við erfiða og harmræna atburði úr bernskunni, sem mótuðu hann alla tíð. Í raun eru Rætur glíma Ólafs Ragnars við klassískar tilvistarlegar spurningar: Hvers vegna er ég einsog ég er? Hvað bjó mig til? Rætur eru því einskonar lykill að ráðgátunni sem er Ólafur Ragnar.“
Össur segir að í bókinni sé augljóst hve mikil áhrif veikindi móður Ólafs Ragnars hafi haft á hann auk fósturs hans hjá ömmu sinni og afa og innrætingar hans hjá föður sínum. „Það er einsog bókin felli saman ákveðin púsl og það birtist betri heildarmynd af okkar gamla forseta, sé yfirhöfuð hægt að draga upp slíka mynd af jafn margbrotnum persónuleika. Æðruleysi, harka sem stundum hefur farið á ystu mörk, sóknin eftir æðstu völdum en jafnframt viðkvæmnin undir yfirborði vígamannsins: Allt virðist þetta eiga sér sterk bergmál í fortíðinni. Þetta er eiginlega Ólafur Ragnar blóðhrár.“